Ég var hjá mömmu minni og Eriku um jólin. Það var alveg ótrúlega gaman. Fórum i tívoli með Önnu Lindu og litlu Eriku. Það skrítnasta var þegar við komum niður i bæin þá voru 3 risastórir fílar að labba á götunni?? um jólin ?? Voða furðulegt. Því miður var svo verið að pakka þeim inn í bílinn svo að við misstum af hvað var i gangi. Allavega þá fórum við inn í jólamarkaðin i tívoliinu. Rosa flottur markaður sem ég mæli með að allir krakkar fari í. Á jóladag vorum við heima hjá bónus ömmu og afa i Raageleje. Ég fékk þvílikt marga og flotta pakka. Takk allir :) Svo vann ég líka möndlugjöfina JIBIII :) alltaf jafn heppin :)
Áramótin voru því miður ekki jafn skemmtileg og jólin. Hundleiðinlegt að vera inni í KBH þar sem maður sér ekki neitt. Ísland er best á gamlárskvöld:)
torsdag den 10. maj 2007
tirsdag den 8. maj 2007
sumar 06
Ég fór með mömmu og Rene til sviþjóðar seinasta sumar. Það var rosa gaman. Bústaður bónus ömmu og afa liggur við risastórt vatn. Sem er geggjað því að fiskarnir í því eru risastórir. Ég veiddi geddu sem var 3.5 kilo. Svaka erfitt að draga i land. Sem betur fer hjálpaði Rene mér. Við fórum síðan i Tívoli sem er i svíþjóð. Stór vatnagarður og það var æði að fara i allar rennibrautirnar. Mamma bannaði mér að fara i stæðstu. En þegar ég verð stærri ætla ég sko i allar brautirnar. Er ekkert hræddur við það.:) Ég fer kannski bráðum aftur í sumarbústaðinn. Allavega þá fer ég til marocco allt næsta sumar. Verð hjá Önnu Ömmu. það verður stuð :)
Kveðjur
Kveðjur
mandag den 7. maj 2007
Kristofer Aron Hendriksson
Hæ ég heiti Kristofer Aron Hendriksson og er 8 ára
Mamma mín er Erla Olafsdottir
Pabbi minn heitir Hendrik Pétur Sigurðsson
Ég er líka heppin að eiga góða bónusmömmu sem heitir Drífa
Og Bónuspabba sem heitir Rene Bonde Sörensen og stjúpbróðir sem heitir Mathias og hálfsystir sem heitir Erika Kristín www.erikakristin.blogspot.com
Ég á heima á íslandi með pabba mínum og Drífu. Mamma mín og Rene búa í Danmörku.
Mamma mín er Erla Olafsdottir
Pabbi minn heitir Hendrik Pétur Sigurðsson
Ég er líka heppin að eiga góða bónusmömmu sem heitir Drífa
Og Bónuspabba sem heitir Rene Bonde Sörensen og stjúpbróðir sem heitir Mathias og hálfsystir sem heitir Erika Kristín www.erikakristin.blogspot.com
Ég á heima á íslandi með pabba mínum og Drífu. Mamma mín og Rene búa í Danmörku.
Abonner på:
Opslag (Atom)